Verkefnasjóður ÍSÍ
Verkefnasjóður ÍSÍ var stofnaður árið 1994 af framkvæmdastjórn ÍSÍ og hefur það markmið að styrkja sambandsaðila vegna sérverkefna sem miða að því að efla íþróttastarf í landinu. Sérstök reglugerð er til um sjóðinn.

ÍSÍ tók upp þá nýbreytni fyrir nokkrum árum að auglýsa styrki til þjálfara til þess að þeir geti sótt sér menntun og kynningu á íþróttastarfi erlendis. Það er skemmst frá því að segja að þeirri nýbreytni hefur verið afar vel tekið.