Íþróttamiðstöðin í Laugardal
Í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal eru til húsa flest öll sérsambönd ÍSÍ ásamt fjölmörgum aðilum sem tengjast íþróttahreyfingunni.

Íþróttamiðstöðin skiptist í fjögur hús.

Hús 1.
Í þessu húsi er Íþróttabandalag Reykjavíkur með skrifstofur sínar.  Auk þess er Atlas Endurhæfing með aðstöðu í húsinu.

Hús 2.
Á jarðhæð er veitingastaðurinn Café-easy.  Á hæð 2 er Atlas Endurhæfing til húsa og á efstu hæð eru skrifstofur Golfsambands Íslands, Mótórhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands, Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA og Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur.

Hús 3.
Á hæð 2 eru fjölmargir aðilar með skrifstofur, s.s. Handknattleikssamband Íslands, Dansíþróttasamband Íslands, Landssamband Hestamannafélaga og Siglingasamband Íslands.  Auk þess er á hæðinni Nuddstofa og skrifstofur Íþróttakennarafélags Íslands og tveggja fagfélaga sjúkraþjálfara.  Á hæð 3 eru fundarsalir ÍSÍ og á hæð 4 eru skrifstofur ÍSÍ.

Hús 4.
Á hæð 2 eru skrifstofur Íslenskrar Getspár og Íslenskra Getrauna, eða Lottó og 1X2.  Á hæð 3 og 4 eru síðan skrifstofur sérsambanda.