Framkvæmdastjórn ÍSÍ
Í framkvæmdastjórn ÍSÍ eiga sæti:
a. Fulltrúi Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) á Íslandi, hafi hann
verið kjörinn í nefndina á grundvelli ríkisfangs og búsetu eða
aðalbækistöðvar hér á landi.
b. 11 menn kosnir á Íþróttaþingi ÍSÍ; forseti sem kosinn er
sérstaklega og 10 meðstjórnendur. Að auki eru 3 varamenn kosnir á
Íþróttaþingi ÍSÍ.
Stjórnin kýs varaforseta, ritara og gjaldkera úr sínum hópi.
Varamenn taka sæti í framkvæmdastjórn í þeirri röð, sem atkvæðamagn
segir til um. Verði varamenn sjálfkjörnir taka þeir sæti í
stjórninni í þeirri röð, sem þeir voru tilnefndir.
Framkvæmdastjórnin heldur fundi eigi sjaldnar en einu sinni í
mánuði. Milli funda annast framkvæmdaráð, þar sem sitja forseti,
varaforseti, ritari og gjaldkeri um erindi sem berast
framkvæmdastjórn og afgreiðslu þeirra. Framkvæmdastjóri sér
um daglegan rekstur sambandsins samkvæmt erindisbréfi þar um.
Forseti boðar til funda í framkvæmdastjórn.
Þeir sem kjörnir eru í framkvæmdastjórn, mega ekki gegna formennsku
í sérsambandi eða héraðssambandi/íþróttabandalagi. Hið sama gildir
um formann Afrekssjóðs ÍSÍ.
Helstu störf framkvæmdastjórnar eru þessi:
a. Að fylgja eftir samþykktum íþróttaþings.
b. Að stýra málefnum ÍSÍ milli íþróttaþinga.
c. Að annast rekstur sambandsins.
d. Að sjá um viðskipti við innlenda og erlenda aðila um mál, sem
ekki heyra undir sérsambönd.
e. Að fylgjast með störfum sérsambanda og
héraðssambanda/íþróttabandalaga. Skal framkvæmdastjórn í þessu
skyni:
Hafa fullan aðgang að bókhaldi og fylgiskjölum sambandsaðila og ef
ástæða þykir til getur framkvæmdastjórn tilnefnt sérstakan
endurskoðanda fyrir sérsamband eða héraðssamband/íþróttabandalag og
fyrirskipað ítarlega rannsókn á fjárreiðum viðkomandi
sambandsaðila. Sambandsaðili getur krafist þess að bókhaldsgögn
fari eingöngu um hendur löggilts endurskoðanda. Fylgjast með
því að lögum og reglum ÍSÍ og sambandsaðila þess sé hlýtt.
Fylgjast með því að þing/aðalfundir sambandsaðila séu haldnir og ef
þörf krefur, annast um boðun og framkvæmd þeirra. Úrskurða í
deilum á milli sambandsaðila.
f. Að sjá um að samdar séu þær almennar reglur, er gilda skuli
fyrir allar íþróttagreinar.
g. Að semja og gefa út reglugerðir um störf nefnda.
h. Að gegna hlutverki sérsambandsstjórnar í þeim íþróttagreinum,
þar sem sérsamband hefur ekki verið stofnað.
i. Að banna heimsóknir erlendra keppenda hingað til lands, telji
framkvæmdastjórnin þær miður heppilegar fyrir hagsmuni
heildarsamtakanna.
j. Að staðfesta lög sambandsaðila.
Fastanefndir ÍSÍ
Í upphafi starfstíma síns skipar framkvæmdastjórn fastanefndir og
stjórnir stoðsviða ÍSÍ.
Stoðsvið ÍSÍ eru þrjú; Afrekssvið, Fræðslusvið og
Almenningsíþróttasvið. Kjörtímabil þeirra er til tveggja ára, hið
sama og framkvæmdastjórnar, nema annað sé sérstaklega ákveðið.
Stoðsvið ÍSÍ skulu m.a. hafa yfirumsjón með viðkomandi
málaflokkum, vera framkvæmdastjórn til ráðuneytis og sjá um
verkefni þeim tengdum.
Þær fastanefndir sem skipa skal eru: Stjórn Afrekssjóðs, stjórn
Styrktarsjóðs ungs og efnilegs íþróttafólks, Heilbrigðisráð,
Lyfjaeftirlitsnefnd, Lyfjaráð, Fjármálaráð, Laganefnd og
Alþjóðanefnd. Aðrar nefndir eru skipaðar eftir því sem
tilefni gefst til að mati framkvæmdastjórnar.