Flýtileiðir
70. Íþróttaþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Þingstaður
70. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið á Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2 í Grafarholti, Reykjavík.
Tillögur
Lokafrestur til að skila inn tillögum um lagabreytingar og önnur mál sem óskast tekin fyrir á Íþróttaþingi, rann út 11. mars sl. Hér á síðunni eru allar tillögurnar sem lagðar verða fyrir þingið, bæði frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og innsendar tillögur frá sambandsaðilum.
Gisting
Við viljum vekja athygli ykkar á tilboði frá Grand Hótel Reykjavík um gistingu í tengslum við þingið. Grand Hótel býður gistingu pr. nótt pr. herb (sama hvort einn eða tveir eru í herberginu) með morgunverði á kr . 12.500.
Áhugasamir geta sent póst á netfangið johann@grand.is eða hringt beint á hótelið í síma 514 8001 og vísað í ofangreint tilboð.
Kvöldverður ÍSÍ
ÍSÍ býður þingfulltrúum til kvöldverðar á Gullhömrum laugardaginn 9. apríl. Þeir þingfulltrúar sem vilja taka maka sinn með á hófið, geta keypt eða tekið frá miða fyrir maka á skrifstofu ÍSÍ frá og með þriðjudeginum 29. mars nk. Miðaverð maka er kr. 7.000 og innifalið í miðaverði er þriggja rétta kvöldverður, skemmtidagskrá og dans.
Áríðandi er að þingfulltrúar láti vita um þátttöku sína og maka í kvöldverðinum ÍSÍ fyrir miðvikudaginn 6. apríl nk. Það væri afar gott ef héraðssambönd, íþróttabandalög og sérsambönd gætu haldið utan um pantanir sinna fulltrúa að einfalda utanumhald.
Flugáætlanir
Upplýsingar um áætlun Flugfélags Íslands (FÍ) er að finna á heimasíðu FÍ, www.flugfelag.is. Þingfulltrúum er bent á að hafa samband við skrifstofu ÍSÍ vegna afgreiðslu afsláttarfargjalda skv. samningi ÍSÍ og FÍ.