Í lögum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir:
11. grein Íþróttaþing
11.1.
Íþróttaþing er æðsta vald um málefni ÍSÍ
11.2.
Íþróttaþing skal haldið annað hvert ár, á tímabilinu 1. mars til 1.
júní. Skal það auglýst með þriggja mánaða fyrirvara og ítrekað
síðar. Framkvæmdastjórn ákveður fundarstað. Kjör eða tilnefning
fulltrúa til setu á íþróttaþingi fer sérstaklega fram fyrir hvert
þing.
11.3.
Eigi síðar en 2 vikum fyrir íþróttaþing skal senda aðilum dagskrá
þingsins, reikninga, fjárhagsáætlun, tillögur sem borist hafa ásamt
þeim tillögum sem framkvæmdastjórn hyggst leggja fyrir
þingið.
11.4.
Tillögur sem óskast teknar fyrir á íþróttaþingi, skulu hafa borist
framkvæmdastjórn 4 vikum fyrir þingsetningu.
11.5.
Á íþróttaþingi skal kjósa 5 manna kjörnefnd og tvo til vara, sem
starfar til loka næsta þings. Tilkynningar um framboð skulu berast
kjörnefnd eigi síðar en 3 vikum fyrir íþróttaþing. Hafi ekki
nægilegur fjöldi gefið kost á sér á þeim tíma, er kjörnefnd heimilt
að framlengja framboðsfrestinn enda sé það tryggilega tilkynnt
sambandsaðilum. Hafi, þrátt fyrir það, eigi borist næg
framboð skal kjörnefnd hlutast til um að afla nauðsynlegs fjölda
framboða.
Til að tilkynning um að framboð teljist löglegt skal eitt ólympískt
sérsamband og eitt héraðssamband eða íþróttabandalag hafa
lýst yfir stuðningi við það.
Kjörnefnd er eftirlitsaðili með kosningum.