Um ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) varð til árið 1997 við sameiningu Íþróttasambands Íslands, sem var stofnað árið 1912, og Ólympíunefndar Íslands. 

ÍSÍ eru einu heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og æðsti aðili frjálsar íþróttastarfsemi í landinu samkvæmt íþróttalögum. Eitt af meginverkefnum ÍSÍ er að efla, samræma og skipuleggja íþróttastarfsemi á Íslandi, auk þess að styðja við þróun hvers kyns íþrótta, jafnt almennings- sem afreksíþrótta.