Flýtileiðir
London 2012 - Fánaberi Ísland
26.07.2012
Ásdís
Hjálmsdóttir, keppandi í spjótkasti kvenna, verður fánaberi Íslands
á setningarhátíð Ólympíuleikanna í London föstudaginn 27. júlí.
Ásdís er þar með önnur íslenska konan sem fær það hlutverk á
setningarhátíð sumarleikanna en Guðrún Arnardóttir var fánaberi á
leikunum í Sydney árið 2000. Alls hafa fimm íslenskar konur verið
fánaberar á setningarhátíð leikanna og verður Ásdís því sú sjötta
ef sumar- og vetrarleikar eru taldir saman.
Ásdís keppti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og þetta verða
því aðrir leikarnir hennar. Hún hefur staðið sig gríðarlega
vel í öllu því sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og mun án efa
standa sig vel í að leiða íslenska hópinn inná Ólympíuleikvanginn i
London.