
Fyrstu Ólympíuleikar ungmenna fara fram í Singapore dagana 14.- 26. ágúst n.k. Ísland mun eiga 5 keppendur á leikunum og keppa þeir í sundi og skylmingum.
Stutt er síðan Alþjóðaólympíunefndin samþykkti að setja á fót þessa leika og munu þeir fara fram á fjögurra ára fresti, líkt og hinir hefðbundnu Ólympíuleikar. Hver þjóð mun að lágmarki eiga fjóra keppendur á leikunum og er keppt í öllum þeim íþróttagreinum sem eru á Sumarólympíuleikum, en þær verða 26 á leikunum í London 2012.
Keppendur ásamt þjálfurum og fararstjóra hittust á fundi í vikunni, þar sem farið var yfir fjölmörg atriði er tengjast leikunum. Undirbúningur þeirra er á fullu með æfingum og þátttöku í erlendum mótum, svo eitthvað sé nefnt.
Samhliða íþróttakeppninni á leikum mun verða lögð áhersla á ýmsa samfélagsþætti og fræðslu, sem miðar að því að fræða þátttakendur um Ólympíuhugsjónina, samvinnu, vinskap og heiðarleika, svo eitthvað sé nefnt. Miðlar eins og YouTube og Twitter eru nýttir til hins ítrasta og reynt er að hafa umgjörð leikana áhugaverða fyrir aldurshópinn 14-18 ára, en það er sá aldur sem hefur keppnisrétt á leikunum. Alls eru um 3.500 keppendur á leikunum og leikarnir eru þannig töluvert minni en hinir hefðbundnu Ólympíuleikar.
Frekar upplýsingar um leikana, íslensku þátttakendurna og
dagskrá þeirra er hér á heimasíðu ÍSÍ og munu fleiri upplýsingar
verða settar þar inn á næstunni.
Eins má benda áhugasömum á að skoða heimasíðu leikanna og Alþjóðaólympíunefndarinnar.