Flýtileiðir
Sumarfjarnám komið í gang
05.07.2010
Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun er nú komið í fullan gang.
Námið er almennur hluti 1. stigs og gildir jafnt fyrir allar
íþróttagreinar. Um 20 nemendur eru þátttakendur að þessu
sinni og eru þeir búsettir víða á landinu s.s. í Reykjanesbæ,
Grindavík, Akranesi, Hafnarfirði, Hólmavík og Akureyri auk
höfuðborgarsvæðisins. Námið tekur átta vikur og verður því
lokið seinni partinn í ágúst.