Þann 30. júní síðastliðinn fór fram alþjóðleg ráðstefna um
íþróttasálfræði og afreksíþróttir. Nokkrir af fremstu
íþróttasálfræðingum evrópu voru með fyrirlestra og vinnustofur.
Ráðstefnan var haldinn að frumkvæði Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Fjöldi manns sá sér
fært að mæta og voru í heildina um 75 manns sem tóku þátt.
Þátttakendur voru meðal annars, þjálfarar, sjúkraþjálfarar,
styrktarþjálfarar, kennarar, nemar, sálfræðingar, læknar,
íþróttafólk o.fl.
Nokkrir af mest sóttu fyrirlestrunum voru;
- Visualization techniques as mental preparation for competion
- Detection, diagnosis and treatment of overtraining
- Working with a handball team and a coach in the Swedish elite division
- Psychological aspects of talent development
- Psychological prevention intervention & support for injured athletes
Þessa daganna er verið að vinna í því að fá glærur og efni frá
fyrirlesurunum í hendurnar. Við fengum að vísu ekki leyfi til þess
að setja glærur á netið enn við komum til með að láta vita hvernig
verður hægt að nálgast glærurnar. Þær upplýsingar verða settar á
síðuna um íþróttasálfræðiráðstefnuna auk þess sem við komum til með
að setja inn stutta samantekt af því helsta frá ráðstefnunni. Hægt
er að komast á síðuna með því að smella á sjá flippa sem er
hér til hægri á síðunni.