Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands hefur staðið fyrir átaks- og
hvatningarverkefnum fyrir almenning síðustu ár. Dagsetningar fyrir
verkefnin árið 2010 liggja nú fyrir og verður Lífshlaupið haldið
dagana 3. – 23. febrúar, Hjólað í vinnuna verður ræst 5. – 25. maí
og Kvennahlaupið fer fram laugardaginn 19.júní. Með því að smella á
Lífshlaupið, Hjólað í vinnuna og Kvennahlaupið er hægt að fá nánari
upplýsingar um fyrirkomulag og reglur.
Landsmenn hafa tekið átaks- og hvatningarverkefnum ÍSÍ gríðarlega vel og hvetjum við alla til þess að merkja við þessar dagsetningar á dagatalið fyrir árið 2010.
Lífshlaupið er fyrir alla og þar geta þátttakendur tekið þátt í vinnustaðakeppni, hvatningarleik fyrir grunnskóla og einstaklingskeppni.
Hjólað í vinnuna verður ræst í áttunda sinn árið 2010. Þátttakendum hefur fjölgað um 1400% eða frá 533 árið 2003 til 8.041 árið 2009.
Kvennahlaupið verður haldið á sjálfan kvenréttindadaginn og er undirbúningur þegar hafinn.