Play True Quiz
 
Alþjóða lyfjareglurnar voru fyrst samþykktar árið 2003 og tóku gildi árið 2004. Nýjar og uppfærðar lyfjareglur tóku gildi 1. janúar 2009. Tilgangur Alþjóða lyfjareglnanna er að vernda grundvallarrétt íþróttamanna til að taka þátt í lyfjalausum íþróttum og stuðla þannig að heilbrigði, sanngirni og jafnrétti fyrir íþróttamenn um allan heim. Auk þess að tryggja samræmdar, samstilltar og skilvirkar áætlanir gegn lyfjanotkun á alþjóðavísu og landsvísu hvað varðar greiningu, hömlur og forvarnir.

Lyfjareglurnar eru grundvallarskjalið sem alþjóða lyfjaeftirlitið í íþróttum byggir á. Alþjóða lyfjareglunum fylgja alþjóðleg viðmið um lyfjapróf og undanþágur vegna lækninga.

Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) heldur utan um hinn opinbera texta lyfjareglnanna. Í ágreiningsmálum skal frumtextinn (á ensku) gilda.