Play True Quiz
 
Helgi Þór áfram formaður TSÍ

24. ársþing Tennissambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 24. apríl sl.  Helgi Þór Jónasson var endurkjörinn formaður sambandsins.  Aðrir í stjórn eru Þrándur Arnþórsson, Bragi Leifur Hauksson, Gunnar Þór Finnbjörnsson og Júlíana Jónsdóttir. Í varastjórn voru kjörnir Jónas Páll Björnsson, Jón Axel Jónsson og Raj K. Bonifacius. 

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ en hann var einnig þingforseti. 

Lyfjaeftirlitsnámskeið
Laugardaginn 24. mars s.l. stóð lyfjaráð og lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ í sameiningu fyrir námskeiði um lyfjaeftirlitsmálaflokkinn. Námskeiðið var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið sátu m.a. nemendur í meistaranámi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og lyfjafræðinemendur við sama skóla. Alls sátu um 30 þátttakendur námskeiðið.
Skráður lyfjaprófunarhópur Lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ 2012

Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur birt skráðan lyfjaprófunarhóp fyrir árið 2012. Að þessu sinni eru 14 afreksíþróttamenn í einstaklingsgreinum í hópnum. Auk þeirra skila Knattspyrnu- og Handknattleikssamband Íslands upplýsingum um landslið sín hjá báðum kynjum.

Nánar er hægt að lesa um þær kröfur sem gerðar eru til íþróttamanna í skráðum lyfjaprófunarhópi og hverjir tilheyra hópnum hér.
Fundur um lyfjaeftirlitsmálaflokkinn

Lyfjaeftirlit ÍSÍ hélt árlegan upplýsingafund með sérsamböndum og sérgreinanefndum fyrr í dag. Umfjöllunarefnin voru nýr bannlisti WADA sem gildi tekur þann 1. janúar n.k. og breytingar frá núgildandi lista, helstu atriði er lúta að undanþágum frá bannlista, umfjöllun um útgefið fræðsluefni, skráður lyfjaprófunarhópur og hlutverk sérsambanda gagnvart lyfjaeftirliti.

Hér til hliðar má sjá mynd af fulltrúum sérsambanda sem mættu á fundinn.
Ísland uppfyllir skilyrði
Eins og kveðið er á um í Alþjóðalyfjareglunum hefur Alþjóðalyfjaeftirlitið (WADA) gefið út skýrslu um hvernig undirritunaraðilum gengur að uppfylla skyldur sínar gagnvart kröfum sem settar eru fram í Alþjóðalyfjareglunum. Úttektin gengur útá að kanna hvort lög viðkomandi aðila uppfylli þær kröfur sem gerðar eru og taki til þeirra atriða sem þeim ber að gera. Þeir sem ekki uppfylla kröfurnar eða hafa ekki skilað tilskyldum upplýsingum tímanlega fá þau ummæli að þeir uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru. Lög ÍSÍ um lyfjamál voru uppfærð á síðasta Íþróttaþingi með tilliti til þeirra krafna sem gerðar eru. Uppfylla þau öll skilyrði slíkra laga og fær því Ísland þá umsögn. Lista yfir lönd og stöðu þeirra gagnvart því hvort þau uppfylli skilyrðin má sjá hér.
Hættan við lyfjamisnotkun
Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur gefið út í samstarfi við Alþjóðalyfjaeftirlitið (WADA) bækling um hættuna við lyfjamisnotkun. Var hann gefinn formlega út í Viku 43 sem haldin var fyrir skemmstu og kynntur á hádegisfundi ÍSÍ um lyfjaeftirlitsmálefni. Bæklingurinn sem er hnitmiðaður og litríkur er sniðinn að yngra íþróttafólki. Fjallað er um áhættuna sem fylgir notkun ýmissa efna og aðferða. Meðal þess sem fjallað er um eru megrunarvörur og fæðubótarefni, EPO, sterar og fíkniefni. Bæklingurinn hefur verið sendur á öll íþróttamannvirki, íþróttafélög, sérsambönd og íþróttahéruð. Hægt er að nálgast bæklinginn á netinu hér og senda beiðni á lyfjaeftirlit@isi.is til að fá send fleiri eintök.
Bannlisti WADA 2012
Alþjóðalyfjaeftirlitið (WADA) gefur árlega út bannlista sinn. Nú er búið að birta listann sem tekur gildi þann 1. janúar n.k. Íslenska útgáfu af listanum auk útskýringa á helstu breytingum milli ára má finna hér
Hádegisfundur - lyfjaeftirlit
Hádegisfundur ÍSÍ fór fram í gær miðvikudaginn 2. nóvember. Að þessu sinni var umfjöllunarefnið lyfjaeftirlit í íþróttum. Dr. Skúli Skúlason formaður Lyfjaráðs ÍSÍ fjallaði um bannlista WADA sem tekur gildi þann 1. janúar n.k. Fór hann yfir helstu breytingar sem verða frá núgildandi bannlista. Davíð Ólafsson í Lyfjeftirlitsnefnd ÍSÍ fjallaði um nýjan fræðslubækling sem lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur gefið út í samvinnu við Alþjóðalyfjaeftirlitið, einnig fjallaði hann um orku- og íþróttadrykki og innihaldsefni þeirra. Örvar Ólafsson starfsmaður Lyfjaeftirlitsnefndar sagði frá lyfjaeftirliti meðal íþróttafólks á Íslandi, Lögum ÍSÍ um lyfjamál og skráðum lyfjaprófunarhóp. Góð mæting var á fundinn, hér til hliðar má sjá áheyrendur.
Hádegisfundur ÍSÍ 2. nóvember
ÍSÍ býður upp á hádegisfund frá kl. 12.00-13.00 miðvikudaginn 2. nóvember næstkomandi í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar Í Laugardal.  Að þessu sinni munu Dr. Skúli Skúlason, Davíð Ólafsson lyfjafræðingur og Örvar Ólafsson verkefnisstjóri ÍSÍfjalla um lyfjamál.
Vika 43

Nú stendur yfir vika 43, vímuvarnarvikan. Er þetta áttunda árið sem vikan er tileinkuð vímuvörnum. Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem koma að forvarnarstarfi beint eða óbeint til að vekja athygli á forvarnarstarfi og áfengis- og vímuefnamálum. Í ár er athyglinni beint að rétti barna og ungmenna til vímulauss lífs og vernd þeirra gegn neikvæðum áhrifum neyslu áfengis og annarra vímuefna. Er þar sérstaklega bent á yfirlýsingu aðildarríkja Alþjóðaheilbrigðismálastonunarinnar frá 2001 og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Hreinn sigurvegari

Breska lyfjaeftirlitið hefur kynnt átakið ,,Hreinn sigurvegari - segðu nei við lyfjamisnotkun"! (Win Clean: Say No to Doping). Er það unnið í samvinnu við skipulagsnefnd Ólympíuleikanna og Ólympíumóts fatlaðra í London 2012, ráðuneyti íþróttamála og Alþjóða lyfjaeftirlitið.

Markmiðið með átakinu er að benda íþróttamönnum sem sett hafa stefnuna á Ólympíuleikana í London á réttindin sín og skyldur tengdar lyfjaeftirliti í íþróttum.Hreinir og heiðarlegir íþróttamenn og þeir sem styðja þær eru boðnir velkomnir. Hinir eru varaðir við að það er markmið mótshaldaranna að leikarnir verði þeir ,,hreinustu" í sögunni og munu þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn lyfjamisnotkun. 

Breyting á skráðum lyfjaprófunarhópi

Þar sem skíðamaðurinn Björgvin Björgvinsson hefur tilkynnt að hann sé hættur æfingum og keppni var íþróttamaðurinn tekinn úr skráðum lyfjaprófunarhópi ÍSÍ frá 1. október að telja. Þann 1. apríl s.l. bættist Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarpari í skráðan lyfjaprófunarhóp ÍSÍ.

 

Nánari upplýsingar um skráðan lyfjaprófunarhóp og hvaða einstaklingar eru í hónum nú má sjá hér.
Bannlisti WADA 2012
Alþjóða lyfjaeftirlitið WADA hefur birt bannlista sem tekur gildi þann 1. janúar 2012 og gildir út árið. Meðal helstu breytinga frá listanum í ár má nefna að formoterol hefur verið fjarlægt af lista yfir bönnuð efni, ef magn efnisins fer ekki yfir tiltekin mörk. Beta blokkarar hafa verið teknir af bannlista hjá bobsleðamönnum, krullu, nútíma fimtarþraut, mótórhjólaakstri, siglingum og fangbragðaglímu. 
Niðurstaða í dómsmáli
Ný Lög ÍSÍ um lyfjamál

70. Íþróttaþing ÍSÍ, haldið Gullhömrum í Reykjavík 8. - 9. apríl 2011, samþykkti ný Lög ÍSÍ um lyfjamál í samræmi við kröfur Alþjóðalyfjaeftirlitsins – WADA.  Með samþykkt féllu eldri Lög ÍSÍ  um lyfjamál frá 2009 niður.

Hægt er að sjá nýsamþykkt lög með því að velja Lög ÍSÍ um lyfjamál hér til vinstri á síðunni, sjá hér

35. rannsóknarstofan fær vottun frá WADA
Framkvæmdastjórn WADA hefur samþykkt vottun rannsóknarstofunnar í Almaty í Kasakstan. Hefur rannsóknarstofan því leyfi til að greina sýni tekin í lyfjaprófum hjá íþróttamönnum. Ferlið við að afla tilskylinna leyfa hófst árið 2007. Markmiðið er að ganga úr skugga um að rannsóknarstofurnar uppfylli ströngustu gæðakröfur. Meðal annars er farið í vettvangsheimsóknir í rannsóknarstofuna, fulltrúar rannsóknarstofunnar hafa unnið með sérfræðingum WADA og óháðir vottunaraðilar hafa farið yfir gæðastaðla.
Skráður lyfjaprófunarhópur ÍSÍ 2011
Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur birt hvaða íþróttamenn eru í skráðum lyfjaprófunarhópi árið 2011. Að þessu sinni eru í hópnum níu íþróttamenn, fimm konur og fjórir karlar. Er þetta í annað sinn sem slíkur listi er birtur. Nánari upplýsingar um hópinn má finna hér fyrir neðan, jafnframt er hægt að lesa nánar um þær kröfur sem gerðar eru á heimasvæði lyfjaeftirlitsins www.lyfjaeftirlit.is.
Fundur með sérsamböndum
Fyrr í dag stóð Lyfjaeftirlit ÍSÍ fyrir árlegum fundi með sérsamböndum og sérgreinanefndum um lyfjaeftirlitsmálaflokkinn. Fundurinn var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Meðal þess helsta sem fjallað var um var bannlisti WADA sem tekur gildi 1. janúar n.k. Á fundinum var einnig fjallað um beiðnir um undanþágur og hvað hafa ber í huga tengt þeim. Auk þess var fjallað um lyfjaeftirlitið hér á landi og nýjasta fræðsluefnið sem gefið hefur verið út. Hér til hliðar má sjá svipmyndir af fundinum.
Bannlisti WADA 2011
Bannlisti WADA (Alþjóða lyfjaeftirlitsins) sem tekur gildi 1. janúar 2011 er aðgengilegur á heimasíðu Lyfjaeftirlits ÍSÍ. Hægt er að nálgast hann hér, eða með því að velja Alþjóða lyfjareglurnar - Bannlisti á heimasvæði lyfjaeftirlits ÍSÍ.
Vel heppnað málþing
Lyfjaeftirlit ÍSÍ stóð fyrir í samvinnu við lyfjafræðinema í Háskóla Íslands málþingi um lyfjamisnotkun í íþróttum. Hér til hliðar má sjá nokkrar svipmyndir frá málþinginu. Var það haldið í gær í húsakynnum HÍ í Stakkahlíð. Hér er hægt að skoða fyrirlestrana, þeim verður auk þess komið fyrir á heimasvæði Lyfjaeftirlitsins hverjum fyrir sig á komandi dögum.
Málþing - lyfjamisnotkun og íþróttir
Lyfjaeftirlit ÍSÍ í samvinnu við lyfjafræðinema við HÍ stendur fyrir málþingi um lyfjamisnotkun og íþróttir þann 23. nóvember n.k. Er málþingið hluti af námskeiði 5. árs nema í klínískri lyfjafræði við Háskóla Íslands.

Helstu umfjöllunarefnin eru almenn umfjöllun um lyfjamisnotkun og íþróttir, náttúruefni og fæðubótaefni, notkun vefjaaukandi efna og stera auk þess sem fjallað er um ýmis deilu- og vafamál. Í lok málþingsins verður samantekt á efni dagsins og tækifæri fyrir umræður og fyrirspurnir.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestrarnir verða haldnir í húsakynnum Háskóla Íslands við Stakkahlíð í salnum Bratta (sjá nánar hér). Dagskráin stendur frá kl. 9.00-16.00, nánari upplýsingar um fyrirlestrana er að finna hér.
Iðkendatölur 2009

Iðkendatölur ársins 2009 eru komnar út. Iðkunum hefur fjölgað um 3,1% milli ára og voru árið 2009 samtals 112.366 innan ÍSÍ. Alls stunduðu 81.972 landsmanna íþróttir innan hreyfingarinngar sem jafngildir því að 25,7% landsmanna stundi íþróttir innan ÍSÍ. Fjöldi íþróttagreina voru 43 stundaðar í 25 íþróttahéruðum hjá 465 íþróttafélögum.

Iðkendatölur 2009 hér

Tölfræði ÍSÍ er að finna hér
USADA 10 ára
Í ár heldur USADA, sem sér um lyfjaeftirlit í Bandaríkjunum , upp á 10 ára afmæli stofnunarinnar. Af því tilefni hafa þau gefið út veglegt afmælisrit sem fer yfir sögu þeirra þessi tíu ár og þróunina sem orðið hefur í baráttunni gegn lyfjamisnotkun í íþróttum á sama tíma. Hægt er að nálgast blaðið á netinu, sjá hér.
Námskeið fyrir starfsmenn lyfjaeftirlits ÍSÍ
Í gærkvöldi stóð Lyfjaeftirlitsnefnd og Lyfjaráð ÍSÍ fyrir fræðslufundi fyrir þá sem starfa við lyfjaeftirlit á vegum ÍSÍ. Megin umfjöllunarefnið að þessu sinni var prófun íþróttamanna í skráðum lyfjaprófunarhópi. Einnig var farið yfir hvernig lyfjaeftirlitið hefur gengið á árinu, bannlista WADA fyrir 2011 og helstu verkefni sem framundan eru. 
Úrskurður Dómstóls ÍSÍ í lyfjamáli
Dómstóll ÍSÍ hefur kveðið upp dóm í máli nr. 4 2010. Lyfjaráð ÍSÍ höfðaði málið vegna brots á Lögum ÍSÍ um lyfjamál. Niðurstaða Dómstólsins var að viðkomandi íþróttamaður var dæmdur í 6 mánaða keppnisbann og útilokun frá trúnaðarstörfum. Vegna ungs aldurs íþróttamannsins er nafn hans ekki birt. Hægt er að nálgast dóminn í heild sinni á heimasvæði Dómstóls ÍSÍ, sjá hér.
Skráður lyfjaprófunarhópur ÍSÍ
Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur birt skráðan lyfjaprófunarhóp fyrir árið 2010. Í hópnum eru sjö íþróttamenn sem skila þurfa upplýsingum um æfingar og staðsetningar ársfjórðungslega.
Næring og íþróttir
Segðu NEI við lyfjamisnotkun!
Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) stendur fyrir átaki í samvinnu við Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) meðan á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu stendur. Átakið ber yfirskriftina Segðu NEI við lyfjamisnotkun (Say NO! to Doping).
Uppbygging lyfjaeftirlits Rússlands
Norðmenn hafa undanfarið í samvinnu við Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) unnið með lyfjaeftirliti Rússlands (RUSADA) að frekari uppbyggingu starfsemi þeirra. Meðal annars hafa þeir veitt ráðgjöf við innleiðingu ISO 9001 gæðakerfisins. WADA fagnar slíkri samvinnu þar sem þau ríki sem eru í fararbroddi í málaflokknum miðla þeim sem skemmra eru komnir á veg. Næsti fundur aðilanna er fyrirhugaður í september þar sem farið verður yfir þróunina og næstu skref.
Hádegisfundur um lyfjamál

ÍSÍ bauð upp á hádegisfund um lyfjamál föstudaginn 26. mars síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.  Skúli Skúlason formaður Lyfjaráðs ÍSÍ fjallaði um framkvæmd lyfjaeftirlits hér landi og Reynir Björnsson formaður Lyfjaeftirlitsnefndar fjallaði um undanþágur frá bannlista.

Skúli og Reynir fjölluðu m.a. um breytingar vegna nýrra laga ÍSÍ um lyfjamál, nýjar alþjóðlegar lyfjareglur, nýjan bannlista WADA og undanþágur frá honum.

Örvar Ólafsson verkefnisstjóri lyfjamála hjá ÍSÍ gefur frekari upplýsingar um efnið á orvar@isi.is eða í síma 514-4000.

Glærur frá fyrirlestrum Skúla og Reynis eru nú komnar inn á vef ÍSÍ www.isi.is

Nýr bannlisti WADA

Nú um áramót tók gildi nýr bannlisti WADA fyrir árið 2010. Meðal helstu breytinga má nefna að súrefnisgjöf er ekki lengur bönnuð. Þremur örvandi efnum (benfluorex, prenylamine og methylhexaneamine) hefur verið bætt við flokk efna sem ekki eru sérstaklega tilgreind. Leiðir það af sér að ekki er hægt að milda refsingu vegna notkunar efnanna eins og áður var. Búið er að banna pseudoephedrine sé styrkur þess yfir 150µg/mL. Efnið hefur verið á eftirlitslista frá árinu 2004 en færist nú á bannlista. Búið er að taka af vafa um að öll synthetisk kannabisefni eru bönnuð.

Mestu breytingarnar urðu þó vegna sykurstera sem notaðir eru ókerfistengt. Fyrir þá sem nota slík efni ókerfistengt (sprautað í lið, við lið, sinaslíður, utanbasts, í mænu, undir húð og við innöndun) og/eða berkjuvíkkandi astmalyf sem innihalda salbutamol eða salmeteról er nóg að hafa meðferðis „Yfirlýsingu um notkun“. Sem dæmi um lyf sem innihalda efnin má nefna Ventolin, Serevent og Seretide. Hámarks notkun á salbutamol á sólarhring eru 1600µg.