Vilhjálmur
Einarsson, silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólympíuleikunum í
Melbourne1956, var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á afmælishátíð ÍSÍ,
28. janúar sl. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma að
útnefna Vilhjálm í Heiðurshöllina á hátíðarfundi framkvæmdastjórnar
ÍSÍ fyrr þennan dag.
Vilhjálmur, sem er Heiðursfélagi ÍSÍ, var einn af fremstu þrístökkvurum heims á árunum 1956-1962 og einnig á Evrópumælikvarða í langstökki sömu ár. Vilhjálmur setti glæsilegt Ólympíumet þegar hann vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956 með stökki sínu 16.26 m. Það met bætti síðan heimsmethafinn Da Silva frá Brasilíu með sigurstökki sínu á sömu leikum. Vilhjálmur stóð sig einnig frábærlega á Ólympíuleikunum í Róm 1960 er hann náði 5. sæti í þrístökki með stökki upp á 16.37 m. Hann vann einnig til 3. verðlauna á EM í Stokkhólmi 1958 og varð í 6. sæti í Belgrad 1962, svo eitthvað sé nefnt. Vilhjálmur hefur ætíð sýnt íþróttum og íþróttahreyfingunni á Íslandi mikinn áhuga og velvilja, verið mörgum íþróttamanninum fyrirmynd og blásið þjóðinni bjartsýni í brjóst með því að sýna og sanna að við getum vel unnið til verðlauna á stórmótum úti í heimi, þó að fámenn séum.
Heiðurshöll er óáþreifanleg „höll” afreksíþróttafólks og
afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri
grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í
Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ
ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu nýja
verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall okkar
framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra
helstu afrekum.