Flýtileiðir
Útgáfa
ÍSÍ
hefur á síðustu misserum lagt töluverða vinnu í að endurskipuleggja
útgáfustarfsemi sína. Árið 1999 kom út Þjálffræðibók í samvinnu við
bókaútgáfuna IÐNÚ. Bókin er notuð sem kennslubók á íþróttabrautum
framhaldsskólanna og leysir af hólmi fræðslurit ÍSÍ. Bókin er
sömuleiðis undirstaða kennsluefnis í fræðslukerfi ÍSÍ. Bókin fæst hjá
IÐNÚ.
ÍSÍ hefur einnig
gefið út smærri fræðslu- og upplýsingabæklinga sem hefur verið dreift
ókeypis um land allt. Efni þessara bæklinga er nú hægt að nálgast hér á
heimasíðunni.