Þjálfari 1c - almennur hluti

Námskeiðið sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla starfsemi líkamans og íþróttameiðsl. Farið verður yfir stefnu ÍSÍ í forvarnarmálum og einnig verður kynning á notkun tölvu- og upplýsingatækni við þjálfun.
Þátttakandi verður að hafa lokið almennum hluta 1b til að komast á þetta námskeið.

Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjáfarastigs 1c hlýtur réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri.

Vinnulag:         Fyrirlestrar, verkefnavinna og verkleg æfing.

Námsmat:        Skriflegt próf úr efni fyrsta stigs (1a, 1b og 1c almennum hluta).

Umfang:           20 kennslust.

Tími:                Námið er ýmist í boði á stuttum námskeiðum eða sem fjarnám og er þá allt fyrsta stigið kennt í einu.  Það er auglýst hverju sinni á heimasíðu ÍSÍ.

Skráning:         ÍSÍ, sími: 514-4000 eða netfang: namskeid@isi.is     

Námskeið nr. Námskeið hefst Lokaskráning Staðsetning