Námskeiðið er framhaldsnámskeið Almenns hluta 1a og er samræmt fyrir allar íþróttagreina. Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla um þroskaferli barna, þ.e. vaxtarþroska og hreyfiþroska. Einnig er fjallað um undirstöðuatriði kennslufræði, mikilvægi rétt mataræðis, fyrstu viðbrögð við íþróttameiðslum og fleira.
Nemandi sem lýkur
þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjálfarastigs 1b
hlýtur réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri undir eftirliti
yfirþjálfara.
Vinnulag: Fyrirlestrar, verkefnavinna og verkleg æfing.
Umfang: 20 kennslust.
Tími: Námið er ýmist í boði á stuttum námskeiðum eða sem fjarnám og er þá allt fyrsta stigið kennt í einu. Það er auglýst hverju sinni á heimasíðu ÍSÍ.
Skráning: ÍSÍ, sími: 514-4000 eða netfang: namskeid@isi.is
| Námskeið nr. | Námskeið hefst | Lokaskráning | Staðsetning |