Flýtileiðir
Námskeiðahald
Íþróttahreyfingin hefur samræmt kerfi er viðkemur þjálfaramenntun. ÍSÍ sér um að kenna þann hluta námsins sem heitir almennur hluti og gildir hann jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Þau námskeið eru ýmist í boði sem 20 kennslustunda helgarnámskeið, stutt 5 kennslustunda námskeið og sem fjarnám auk þess sem að hægt er taka áfanga í framhaldsskólum sem uppfyllir sömu kröfur og er samræmdur við það nám sem íþróttahreyfingin hefur í boði á 1. stigi menntunarinnar.
Auk þjálfaranámskeiða eru í boði hádegisfyrirlestrar og fræðslukvöld sem og ráðstefnur sem tengjast fjölbreyttum málaflokkum.
Frekari upplýsingar eru birtar hér á heimasíðu ÍSÍ þegar námskeið eru í boði.