Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að barna- og unglingastarfi.
Aðdragandi þessa gæðaverkefnis er nokkur. Í árslok 1997 skipaði stjórn Útbreiðslu- og þróunarsviðs ÍSÍ þriggja manna nefnd til að móta tillögur um hvernig standa mætti að því að veita gæðaviðurkenningar fyrir íþróttastarf. Í nefndinni voru Hafsteinn Pálsson, Ásgerður Halldórsdóttir og Haraldur K. Haraldsson. Nefndin skilaði tillögum sínum á vordögum 1998 og voru þær kynntar sviðsstjórninni og Framkvæmdastjórn ÍSÍ. Stefáni Konráðssyni, framkvæmdastjóra, Sigurði Magnússyni, sviðsstjóra og Frímanni Ara Ferdinandssyni, verkefnastjóra var falið að útfæra tillögurnar frekar og leggja fram lýsingu á áframhaldandi vinnuferli. Á grundvelli þeirrar lýsingar var síðan skipaður þriggja manna stýrihópur sem hafði umsjón með verkefninu, en í honum voru Ingólfur Freysson, formaður, Ragnhildur Skúladóttir og Kristinn Reimarsson. Frímann Ari starfaði með stýrihópnum.
Stýrihópurinn leitaði til nokkurra valinna íþróttafélaga, deilda og íþróttabandalaga um að þau tilnefndu fulltrúa sína í vinnuhóp sem væri ætlað að móta tillögur að vinnureglum og gæðakröfum sem gætu orðið forsendur að gæðaviðurkenningu fyrir barna- og unglingastarf. Eftirtaldir aðilar áttu fulltrúa í vinnuhópnum og tóku þátt í þróunarferlinu:
Knattspyrnudeild Breiðabliks
Sundfélag Hafnarfjarðar
Skíðaráð Akureyrar
Handknattleiksdeild FH
Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur
Íþróttabandalag Akraness
Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag
Íþróttafélag Reykjavíkur
Á fundum sínum fjallaði vinnuhópurinn um fjölmarga þætti í starfsemi íþróttafélaga og deilda auk þess sem sjónarmið sveitarfélaga til gæðaverkefnisins voru rædd á einum vinnufundi. Afrakstur þróunarferilsins var síðan m.a. handbók sem dreift var til íþróttahreyfingarinnar.
Í upphafi ársins 2003 voru veittar fyrstu viðurkenningar til fyrirmyndardeilda og voru þær veittar til þriggja deild Keflavíkur. Íþróttabandalag Reykjanesbæjar átti frumkvæðið til þess að íþróttafélög á Reykjanesi urðu fyrstu félögin til að leggja í markvissa vinnu útfrá gæðaverkefninu.
ÍSÍ réði Petrúnu Bj. Jónsdóttur sem verkefnisstjóra fyrir verkefnið síðari hluta árisins 2003 og fram til vorsins 2004 og hefur markviss kynning farið fram víða um land. Fjölmargir aðilar eru í dag að vinna að og eftir þessu verkefni.
Umsjón með verkefninu hefur í dag Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ.