Leysa úr vandamálum

Það er hægt að líta á vandamál sem hættulegt tækifæri – það er eitthvað sem hefur sitt eigið spennustig, en það býður einnig upp á möguleika á hugmyndaríkri og gagnlegri lausn.

Sex skref

Það eru sex grunn skref sem þarf að huga að við lausn á ágreiningi:

1.    Viðurkenna og skilgreina vandamálið
2.    Útskýra og rannsaka vandamálið
3.    Leita annarra leiða. Kanna mögulega kosti í stöðunni
4.    Ákveða hvaða leið eigi að fara
5.    Framfylgja ákvörðuninni
6.    Meta árangur ákvörðunarinnar

Ferlið

FYRSTA SKREFIÐ:    Viðurkenna og skilgreina vandamálið

•    Hver eru einkennin?
•    Hvenær varð þeirra fyrst vart?
•    Hver var aðdragandinn?
•    Hvaða atvik eða atburðir gefa mynd af vandamálinu?
•    Nákvæmlega hvað er vandamálið? Takið það skýrt fram með vísan í ábyrgð og vísan í gögn sem tengjast málinu
•    Hvernig hefur þetta vandamál áhrif á mig og mitt íþrótta – héraðssamband?
•    Hvernig stuðla ég að því þetta vandamál er enn til staðar?
•    Hvað hef ég látið ógert sem gæti aðstoðað við lausn þessa vandamáls?

ANNAÐ SKREF:    Útskýra og rannsaka vandamálið

•    Hver eða hverjir líta á þetta sem vandamál?
•    Afhverju líta þeir á þetta sem vandamál?
•    Hverjir verða fyrir áhrifum af völdum þessa vandamáls?
•    Fyrir hvernig áhrifum verða þeir?
•    Hverjir aðrir eiga þátt í þessu vandamáli og hvernig eiga þeir þátt í því?
•    Hvaða aðrir þættir hafa áhrif á vandamálið? (t.d. fjárhagsáætlun, hefðir, venjur, viðhorf o.fl)
•    Hvernig ert þú tengdur inn í vandamálið?
•    Hvað vilt þú sjá breytast?
•    Hver er í þeirri stöðu (hefur leyfi og vald) til að geta framkvæmt þessar breytingar?
•    Hvaða jákvæðu kraftar eru til staðar sem geta aðstoðað við lausn á þessu vandamáli?
•    Hvaða neikvæðu kraftar eru til staðar sem gætu hindrað framgang þinn í að finna lausn á þessu vandamáli?

ÞRIÐJA SKREF:    Leita annarra leiða. Kanna hvaða aðrir kostir eru í stöðunni

A.    Heiðblár himinn:
Ímyndaðu þér að liðið sé eitt ár frá því í dag. Þú ert enn að njóta góðs af þeim jákvæðu breytingum sem þú gerðir við að leysa vandamálið sem blasir við þér í dag. Þú upplifir lítið af vandamálum í kringum það viðfangsefni sem þú ert að takast í við í dag.

Í fyrsta lagi:
Gerðu lista yfir allar þær breytingar sem urðu hjá þér eftir ákvörðun þína á þessu vandamáli. Sýndu frumleika og hugmyndaríki.

Í öðru lagi:
Veldu þrennt af listanum sem þú telur að séu forgangsmál, þ.e.a.s. það þrennt sem þú telur að sé mikilvægasta breytingin gagnvart þessu vandamáli. Greindu skýrt og nákvæmlega hvað það er úr listanum.

B.    Hugarflug (Brainstorming):

Góð leið til þess að koma með nýjar hugmyndir/lausnir er einfaldlega að fara á “hugarflug” og skrifa niður það fyrsta sem kemur í kollinn. Verið óhrædd að skrifa niður fáránlegustu hugmyndirnar. Stundum geta hugmyndir sem virka kjánlegar eða ólíklegar leitt til þess að gagnlegur útgangspunktur finnst til þess að finna lausn á vandamálinu.

Reglur fyrir hugarflug:
•    Skrifið allar hugmyndir sem ykkur dettur í hug
•    Ekki gagnrýna eða meta hugmyndirnar strax
•    Það er allt í lagi að endurtaka sömu hugmyndina – hafið þær allar með í listanum
•    Hugsið um nýjar leiðir/lausnir/hugmyndir í 3 til 4 mínútur
•    Stoppið ef þið brjótið einhverjar af reglunum

Þegar hugarfluginu er lokið notið nokkrar mínútur í að velja topp þrjár leiðirnar/hugmyndirnar af listanum. Greindu skýrt og nákvæmlega hvaða þrjá kosti þú velur.
   

FJÓRÐA SKREF: Ákveða hvaða leið eigi að fara

•    Komið upp með eins margar raunhæfar leiðir að lausninni eins og hægt er
•    Finna eitthvað sem þið teljið vera mikilvægt viðmið (mælistika) til þess að meta hverja leið út af fyrir sig
•    Prófið hverja leið/hugmynd gagnvart því sem þið miðið við. Ákveðið hvort einhver leiðinn er raunhæfari en aðrar
•    Ef þið teljið það nauðsynlegt þá er ágætt að prófa og ræða röksemdarfærsluna og lausnina við þriðja aðila

FIMMTA SKREF:    Framfylgja ákvörðuninni

1.    Skrifa niður mikilvægustu aðgerðirnar sem þú ætlar að grípa til við lausn þessa vandamáls
2.    Útlistaðu hvað þú telur að komi til með að gerast við þessar aðgerðir.
•    Hvaða stjórnunarvald þarft þú til þess að geta framfylgt þessari lausn?
•    Hvaða hópur eða einstaklingar eru lykillinn að því lausn náist?
•    Hver er aðal hindrunin sem þú þarft að yfirstíga?
•    Hver eru fyrstu skrefin sem þarf að taka á næstu vikum/dögum?
•    Hver á að hefja aðgerðirnar, taka fyrsta skrefið?
•    Hverjir þurfa að vera látnir vita?

SJÖTTA SKREFIÐ:    Meta árangur ákvörðunarinnar

•    Hvað breytist?
•    Hvaða form af endurgjöf notaðir þú?
•    Hvaða gögn getur þú stuðst við til þess að mæla hvort árangur hafi náðst?
•    Hvaða er annað sem hægt er að gera betur og bæta?