Meginhlutverk stjórnar

Meginhlutverk stjórnar er að stýra starfseminni í samræmi við vilja félagsmanna eins og fram kemur í lögum sambandsins, fundarsamþykktum, samþykktri stefnu og markmiðum. Þá skal leitast við að byggja upp og viðhalda heilbrigðum félagsanda í þeim félögum sem starfa innan félagsins/sambandsins. Dæmi um verkefni stjórnar má t.d. nefna:

•    Að setja fram áætlanagerð fyrir almenna starfsemi og framkvæmdir til lengri og skemmri tíma


•    Að móta hugmyndir og tillögur um ný viðfangsefni


•    Að leysa vandamál sem upp kunna að koma


•    Að framfylgja samþykktum og ályktunum


•    Að fylgjast með að áætlanir og fjárhagur haldist í hendur


•    Að taka á móti erindum sem berast og afgreiða þau


•    Að undirbúa fundi og boða til þeirra


•    Að skipta verkum með einstökum stjórnarmönnum, nefndum, starfsmönnum, félagsmönnum, sjálfboðaliðum og samræma störf þeirra

 

Þessi listi er alls ekki tæmandi og aðeins ætlaður til leiðbeiningar.