Flýtileiðir
Almenningsíþróttasvið ÍSÍ
Stjórn
Almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands er
skipuð af framkvæmdastjórn ÍSÍ og fer með umboð framkvæmdastjórnar
í þeim verkefnum sem henni er falið. Stjórnin er skipuð
þremur aðilum. Tillögur og samþykktir sviðsins skulu bornar undir
framkvæmdastjórn í fundargerðum eða beinum tillögum til endanlegrar
samþykktar ÍSÍ.
Almenn markmið og verkefni sviðsins er m.a.:
- að vinna að stofnun almenningsíþróttadeilda og uppbyggingu þeirra
- að vinna að eflingu umhverfismála meðal sambandsaðila ÍSÍ
- að hvetja stjórnvöld til að bæta aðstöðu til almennrar hreyfingar
- að kynna sviðið og helstu verkefni þess. að efla íþróttir kvenna
- að efla íþróttir eldra fólks
- að efla almenningsíþróttir meðal yngra fólks
- að afla upplýsinga er snerta viðfangsefni sviðsins
- að móta stefnu ÍSÍ í almenningsíþrótta og umhverfismálum
- að taka þátt í verkefnum IOC á sviði almenningsíþrótta og umhverfismála
- að efla hreyfingu og heilbrigða lífshætti hjá landsmönnum
- að efla frumkvöðlastarf á sviði almenningsíþrótta og umhverfismála
- að
sjá um erlend samskipti í málefnum
sviðsins
Helstu verkefni almenningsíþróttasviðs á árinu 2012: