Tækni

Varðandi tækni er best að fá leiðbeiningar frá viðurkenndum leiðbeinanda í byrjun en ef sá kostur er ekki fyrir hendi er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga (sjá myndir):

  • Hreyfingar líkamans eiga að vera eðlilegar og óhindraðar.
  • Þegar stigið er fram í vinstri fót kemur hægri handleggur samhliða fram (mynd 1)
  • Athugið að halda handleggjum að líkamanum.
  • Þungi er færður yfir á handlegg með því að halla sér örlítið fram (myndir 1 og 4).
  • Sérstaklega er mikilvægt að einbeita sér að eftri hluta líkamans. Axlir eiga að vera slakar og armarnir eiga að sveiflast óhindrað með líkamanum.
  • Í aftursveiflu armsins opnast lófinn alveg í lok hennar (mynd 4, sérstakar ólar á stafnum sem gera það mögulegt).
  •  Í framsveiflunni lokast lófinn og armurinn færist aftur fram (sjá vinstri arm myndir 4 og 1).

       
 Mynd 1.  Mynd 2.  Mynd 3.  Mynd 4.


Þú getur einnig nálgast Stafgöngubækling ÍSÍ án endurgjalds með því að smella hér eða hafa samband við skrifstofu ÍSÍ í s: 514 4000, isi@isi.is