Námskeiðið gefur réttindi til að kenna stafgöngu.
Næsta námskeið verður haldið 21. maí og seinni hlutinn í
október. Stefnt er að því að halda framhaldsnámskeið einnig í
október.
Farið er yfir undirstöðuatriði í stafgöngu s.s. tækni, æfingar,
þjálfunaraðferðir og uppbyggingu námskeiða fyrir byrjendur og
framhaldshópa. Þátttakendur eru myndaðir og tæknin skoðuð
nánar.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta þ.e. fyrri hluta sem er 8 klst. og
seinni hluta sem eru 4 klst. og fer fram 2 mánuðum síðar. Á meðan
eiga leiðbeinendur að þjálfa sig í tækninni og safna 10
kennslustundum þar sem þeir eiga að leiðbeina öðrum.
Námskeiðið er m.a. ætlað íþróttakennurum, hjúkrunarfræðingum,
læknum, sjúkra-, þroska-, og iðjuþjálfurum.
Kennarar á námskeiðinu eru með Master Trainer réttindi frá Alþjóða
stafgöngusambandinu, INWA
Þessir Master Trainer þjálfarar eru: Jóna Hildur
Bjarnadóttir og Ásdís Sigurðardóttir, íþróttakennarar
Þær hafa þegar haldið fjölda þjálfaranámskeiða í stafgöngu fyrir
ÍSÍ í Reykjavík, á Egilsstöðum, á Akureyri og á Ísafirði. Einnig
hafa þær leiðbeint almenningi víða um land. Nánari upplýsingar
veitir skrifstofa ÍSÍ, s: 514 4000.