Stafganga

Stafganga eða Nordic walking á rætur sínar að rekja til Finnlands. Þjálfarar gönguskíðamanna létu kappana arka um með stafina sumarlangt eftir að snjór hvarf, til að halda efri hluta líkamans í þjálfun. 1997 var farið að markaðsetja stafgöngu fyrir almenning og framleiða sérstaka stafgöngustafi. Frá þeim tíma hafa stafirnir verið í stöðugri þróun og nýjar rannsóknir, lækna og annara vísindamanna um áhrif stafgöngunnar komið fram. 
Þessi tegund hreyfingar er nú stunduð af milljónum manna og kvenna um heim allan og hentar jafnt ungum sem öldnum, hjartasjúklingum og keppnisfólki. Stafirnir eru einnig góð viðbótarþjálfun og frábært öryggistæki fyrir þá sem stunda línuskauta.

Aðferðir til að halda líkamanum í góðu formi eru margar en þær henta okkur misvel. Ganga er okkur öllum eðlileg og því rösklegar sem gengið er, því fleiri hitaeiningum er brennt. Rannsóknir hafa leitt í ljós að brennslan getur verið 20% meiri ef gengið er með stafi en í venjulegri göngu og stafgangan styrkir líkamann að auki allt að 40% meira en venjuleg ganga. Því er stafganga einföld og áhrifarík aðferð til að komast í gott form.

Stafganga þjálfar alla stærstu vöðva líkamans en fyrst og fremst þann vöðva sem er mikilvægastur - hjartað.
Með því að nota stafi við gönguna virkjast vöðvar efri hluta líkamans meira en í venjulegri göngu og það losnar um spennu í efri hluta líkamans s.s. í hálsi og herðum. Ekkert aukaálag er á hné, ökkla eða hrygg. Þú þjálfar liðina í að þola álag án þess að leggja of mikið á þá.

Allt sem þarf til að stunda stafgöngu eru góðir skór og sérhannaðir stafir í réttri hæð.

Hér á næstu síðum eru ýmsar upplýsingar tengdar stafgöngu t.d. um tæknina, stafi, leiðbeinendur og námskeið.