Sjóvá Kvennahlaup
ÍSÍ fer fram í 23. sinn 16. júní 2012.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ. Hlaupið var í Garðabæ og á 7 stöðum um landið. Á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Laugum í Þingeyjarsýslu, Grundarfirði, Stykkishólmi og í Skaftafellssýslu. Rúmlega 2.000 konur tóku þátt í Garðabæ og um 500 konur á landsbyggðinni. Nú taka árlega um 16.000 konur þátt á 90 stöðum hérlendis og 16 stöðum erlendis.
Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar heilsueflingar. Kvennahlaupið höfðar til allra kvenna þar sem hægt er að velja mislangar vegalengdir. Engin tímataka er í hlaupinu og því ekki hlaupið nema til persónulegs sigurs.
Kvennahlaupið er haldið sem næst kvenréttindadeginum 19. júní þar sem höfðað er til samstöðu kvenna. Innifalið í þátttökugjaldinu er kvennahlaupsbolurinn sem er úr dry-fit efni, með V-laga hálsmáli og verðlaunapeningur.
Frá árinu 2002 hefur
verið hlaupið undir ákveðnu þema og slagorði þar sem vakin er
athygli á málefnum tengdum heilsu kvenna. Hefur kvennahlaupsnefnd
ÍSÍ verið í samstarfi við ýmis félagssamtök eins og Samhjálp
kvenna, Beinvernd, Geðrækt, UNIFEM, Hjartavernd, Lýðheilsustöð,
Krabbameinsfélagið, Kvennfélagasamband Íslands og Styrktarfélagið
Líf.
Sjóvá hefur verið
aðalstyrktaraðili hlaupsins frá árinu 1993. Heimasíða Sjóvá
Kvennahlaups ÍSÍ er hýst á vef Sjóvá www.sjova.is Þar er að finna helstu
upplýsingar um hlaupið, sögu hlaupsins, hlaupastaði og þema. Inn á
vefnum er einnig að finna skemmtileg myndskeið og veglegt myndasafn
frá flestum hlaupastöðum kvennahlaupsins frá árinu 2001.
Kvennahlaupið er einnig á Facebook.
