Dalvík
Félag
aldraðra á Dalvík og í Hrísey heldur uppi öflug og fjölbreyttu
félagsstarfi. Félagsheimilið er að Mímisbrunni á Dalvík.
Mímiskórinn hefur verið starfræktur við félagið til fjölda ára. Auk
þess fara félagar reglulega í lengri og styttri ferðir. Nánari
upplýsingar veitir Bjarni Gunnarsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi,
s: 460 4913.
Eyjafjarðarsveit
Nánari upplýsingar veitir Jónas Vigfússon, sveitarstjóri, 463-1335,
jonas@esveit.is.
Akureyri
Pútt er við Lindasíðu og Bugðusíðu. Fjölnotahúsið Boginn er opinn
alla virka morgna yfir vetrarmánuðina til göngu og almennrar
hreyfingar. Sundtímar með íþróttakennara í Glerárlaug yfir
vetrartímann, leikfimi og námskeið haldin í tengslum við
félagsstarf, t.d. jóga, dans, stólaleikfimi, slökun, leikir og
línudans. Bærinn býður einnig upp á heilsueflandi heimsóknir til
eldri borgara. Hér má nálgast nánari dagskrá. Eldri borgarar fá
frítt í sundlaugar bæjarins sem og á skíðasvæðið.
Nánari upplýsingar veita Kristín Sóley Sigursveinsdóttir,
framkvæmdastjóri Búsetudeildar og Kristinn H. Svanbergsson,
íþróttafulltrúi, kristinn@akureyri.is.
Grenivík
Leikfimi á dvalarheimili aldraðra og aðgangur að þrekhjóli.
Frítt er í sund og líkamsrækt fyrir eldri borgara.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri.
Húsavík
Bærinn er í nánu samstarfi við Félag eldri borgara á
Húsavík og veitir þeim fría aðstöðu.
Frítt er í sund og afnot að íþróttamannvirkjum.
Nánari upplýsingar veitir Freydís Jóna Freysteinsdóttir,
félagsmálastjóri og Jóhann Rúnar
Pálsson, tómstunda- og æskulýðsfulltrúi.