Næring
Hollur og góður matur ræður miklu um líðan okkar og heilsu, ekki síst þegar komið er á efri ár. Það er grundvallaratriði að borða reglulega, þrjár máltíðir á dag. Gæta skal þess að velja fjölbreytta fæðu sem er ekki of þung eða fiturík, en veitir líkamanum öll þau næringarefni sem hann þarfnast til að halda heilsu og kröftum. 

Gott er að setja sér einfaldar reglur eins og að fá sér aðeins einu sinni á diskinn, hæfilegt magn, og borða lítið á milli mála. Það getur verið góð regla að skammta sér þannig á diskinn að grænmeti og ávextir þeki a.m.k. einn þriðja af disknum, kjöt, fiskur eða baunaréttur annan þriðjung og kartöflur, pasta eða hrísgrjón þann þriðja.



Hollusta og hreyfing styrkir bein!

Bein eru lifandi vefur í stöðugri endurbyggingu. Til að haldast sterk og heilbrigð þarfnast þau bæði næringar og líkamlegrar áreynslu alla ævi. Hreyfing, þar sem við berum eigin þunga, eins og t.d. ganga, hlaup, leikfimi og fleiri íþróttir, er mjög góð fyrir heilsu beinanna.
 
Líkamleg áreynsla örvar efnaskipti líkamans og þar með beinmyndunarfrumur og getur þannig unnið á móti beinþynningu á öllum aldri.

Til að draga úr hættunni á beinþynningu og til að varðveita dýrmæt lífsgæði eru bestu forvarnirnar að lifa heilbrigðu lífi sem felur m.a. í sér:

• hæfilega hreyfingu daglega, a.m.k. 30 mín.
• góða næringu með nægu kalki og D-vítamíni
• að forðast reykingar með öllu og neyta áfengis í hófi