|
Hreyfing í daglega
lífinu
Vegna tæknivæðingar og þjóðfélagsbreytinga síðustu áratuga
er hreyfing ekki lengur jafn ómeðvitaður hluti af daglegu lífi
margra eins og var. Hreyfing er eitthvað sem fólk þarf að vera
sérstaklega meðvitað um og gera ráð fyrir í dagsskipulaginu. Það
þarf að taka ákvörðun um að hreyfa sig og það sem reynist oft
erfiðara, að framfylgja ákvörðuninni.
Við þurfum að hreyfa okkur daglega og velja þá hreyfingu sem
hentar, t.d. að ganga, hlaupa, hjóla eða synda.
Við þurfum að vera meðvituð um að velja hreyfingu í stað
hreyfingaleysis í daglega lífinu.
Þú getur stór aukið hreyfingu í þínu daglega lífi ef
þú:
• Gengur upp stigann og sleppir lyftunni.
• Ferð úr strætó einni stoppistöð fyrr.
• Hjólar á áfangastað í stað þess að fara á bílnum.
• Ferð í göngutúr, þó svo að þú eigir ekki hund.
• Stendur upp þegar þú talar í símann, það eykur
blóðflæðið.
• Leggur í bílastæðið sem er lengra frá.
Mundu að hlæja meira, það minnkar streitu og léttir
lund.
|