Flýtileiðir
Hreyfing og heilbrigði - Selfoss 2010
Miðvikudaginn 27. október 2010 stóð Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands fyrir fjórða fræðslufundinum fyrir fólk á besta aldri. Að
þessu sinni var hann haldinn í Grænumörk 5, Selfossi frá 13:00 -
14:30. Fundurinn hófst á ávarpi formanns nefndar um íþróttir 60+,
Hermanns Sigtryggssonar. Guðrún V. Ásgeirsdóttir, M.S. í íþrótta-
og heilsufræðum fjallaði um hreyfingu og næringu eldri
einstaklinga, Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur, fjallaði um
mikilvægi andlegrar heilsu á öllum aldri og Kristín Lilja
Friðriksdóttir, verkefnisstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ kynnti
einstaklingskeppni Lífshlaupsins. Að fundi loknum var öllum gestum
fundarins boðin kynning á stafgöngu.