Flýtileiðir
Hreyfing og heilbrigði - Reykjavík 2009
Fimmtudaginn 26. mars 2009 stóð Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir þriðja fræðslufundinum fyrir fólk á besta aldri. Fundurinn var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal frá 13:00 - 15:30. Páll Ásgeir Guðmundsson, ráðgjafi hjá Capacent kynnti niðurstöður rannsóknar á hreyfingu hjá 50 ára og eldri, Gígja Gunnarsdóttir, íþróttafræðingur og verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð fjallaði um hreyfingu, Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir, lektor í næringafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjallaði um næringu og Samúel Örn Erlingsson, íþróttafræðingur kynnti og sýndi hluta af heimildarmyndinni Lífsgæði á lokaspretti. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ ávarpið gesti.
Hér fyrir neðan má finna hluta af því efni sem var
kynnt.
Skjöl