Miðvikudaginn 26. október stóð nefnd um íþróttir 60+ fyrir fræðslufundi um hreyfingu og heilbrigði í Mosfellsbæ. Fundurinn fór fram í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3 frá 16:00 - 18:00 þar sem um 30 manns hlustuðu á áhugaverð erindi um heilbrigðan lífsstíl. Hermann Sigtryggsson, formaður nefndar um íþróttir 60+, hóf fundinn með ávarpi á eftir honum kom Samúel Örn Erlingsson, íþrótta- og heilsufræðingur. Smúel sagði frá B.S. verkefni sínu um íþróttaiðkun og heilsurækt eldra fólks á Íslandi og sýndi kafla úr heimildarmynd sem hann vann í tengslum við verkefnið. Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur, tók við og fjallaði um mikilvægi góðrar andlegrar heilsu á öllum aldri og hversu mikilvægt það væri að vera líkamlega og andlega virkur. Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ kynnti einstaklingskeppni Lífshlaupsins og að lokum var Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ og stafgönguþjálfari, með sýnikennslu í stafgöngu.
Hreyfing og heilbrigði - Mosfellsbær 2011