Hér fyrir neðan eru upplýsingar um
leika sem hægt er að skrá sig á.
European Company Sport Games í Falun í Svíþjóð 1. - 5. febrúar 2012.
Er þetta í 12. sinn sem vetrarleikarnir eru haldnir og eru þeir skiplagðir á vegum Korpen, sænska sambandsins um íþróttir í fyrirtækjum og Falun Borlange AB, sem sér einnig um skipulagningu á sænsku fyrirtækja vetrarleikunum sem verða haldnir á sama tíma. Búist er við um 500 keppendum víðsvegar frá Evrópu. Leikarnir verða haldnir á Lugnet íþróttasvæðinu þar sem heimsmeistaramótið á skíðum hefur verið haldið þrisvar sinnum. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að kynna sér leikana nánar inná heimasíðu þeirra eða með því að skoða fréttabréf nr:1 og fréttabréf nr:2.
Hægt verður að skrá sig til leiks 1. október 2011.
Þátttökugjaldið er 700 sænskar krónur og innifalið í því er
keppnisgjald fyrir eina íþrótt og opnunarhátíð.
Keppt verður í 10 íþróttagreinum: Svigskíðum,
gönguskíðum, íshokký, skautum, krullu, bandý, íshokký, blaki, keilu
og fótbolta.
Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum:
Flokkur A,16 - 29 ára
Flokkur B, 30 - 39 ára
Flokkur C, 40 - 49 ára
Flokkur D, 50 - 59 ára
Flokkur E, 60 ára og eldri
Flokkur F, 35 ára og eldri
Flokkur G, opinn flokkur
Keppt er í eftirfarandi greinum:
Svigskíði – Risasvig, svig
og liðakeppni í risasvigi, keppt í flokkum A - E
Gönguskíði – 5 km og 10 km í
kvennaflokki og 10 km og 20 km í karlaflokki. Boðganga kvenna 3x5
km í flokkum F og G. Boðganga karla 3x10 km í flokkum F og G.
Einnig er keppt í maraþongöngu.
Bandý – Karla og kvenna í
flokkum F og G.
Íshokký – Flokkum F og
G.
Skautum – 10 km og 30/60 km
í flokki A - E og í 4x5 km boðhlaupi, blönduð lið.
Krullu – Karla- og
kvennaflokki og blönuðum liðum.
Knattspyrna – 5 manna bolta, blönduð lið í flokkum F og G.
Keilu – Liðakeppni, fjórir í liði.
Blak – Liðakeppni karla og kvenna og blönduð lið.
Rinkbandy – er sambærilegt og íshokký nema að spilað er með bolta, styttri kylfur og leikmenn eru ekki eins vel varðir og í íshokký, minna leyft.
Upplýsingar um gistingu og skráningu er að finna hér.