Næstu leikar
 
Vilhjálmur Einarsson
Vilhjálmur Einarsson (1934) er einn okkar frægasti íþróttagarpur.  Á unga aldri iðkaði hann alhliða frjálsíþróttir í heimabyggð sinni á Austfjörðum.  Er hann kom til Reykjavíkur hóf hann að æfa með ÍR og komu þá stökkhæfileikar hans í ljós.  Fremur óvænt náði hann lágmarki í grein sinni og var valinn til keppni á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956.  En skemmst er frá því að segja, að þar varð Vilhjálmur heimsfrægur fyrir að setja ólympíumet í þrístökki og stökkva 16,26 m.  Þessi árangur dugði í annað sætið.  Vilhjálmur tók aftur þátt í Ólympíuleikunum í Róm 1960.  Stökk hann þá 16,37 m sem dugði í fimmta sæti.
(Heimild: Íslendingar á Ólympíuleikum eftir Gísla Halldórsson).