Næstu leikar
 
Vala Flosadóttir
Vala Flosadóttir er fædd og uppalin á Bíldudal. Á táningsaldri flutti hún út til Svíþjóðar þar sem hún stundaði stangarstökk, hér heima keppti Vala fyrir ÍR. Vala náði frábærum árangri í grein sinni. Meðal hennar helstu afreka má nefna að á árunum 1995-1997 setti hún fimm heimsmet unglinga. Árið 1998 setti hún tvisvar sinnum heimsmet innanhúss í kvennaflokki. Meðal helstu titla má nefna að Vala varð Evrópumeistari unglinga 1999 og fullorðinna innanhúss árið 1996. Bestum árangri náði Vala á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000, þá tryggði hún sér bronsverðlaun með 4,50 m stökki. Vala var kosin íþróttamaður ársins árið 2000.