Flýtileiðir
Næstu leikar
Bjarni Friðriksson
Bjarni Ásgeir
Friðriksson (1956) er án efa þekktasti júdómaður þjóðarinnar og
einn mesti afreksmaður íslenskra íþrótta. Bjarni keppti á
fjórum Ólympíuleikum, Moskvu 1980, Los Angeles 1984, Seoul 1988 og
Barcelona 1992.
Á leikunum 1984, þann 9. ágúst, keppti Bjarni í -95 kg. flokki. Keppendur á leikunum voru 24. Bjarni sat yfir í fyrstu umferð en keppti svo við Danann Carsten Jensen í annarri umferð sem hann sigraði á ippon (fullnaðarsigur). Í þriðju umferð mætti Bjarni Bandaríkjamanninum Leo White sem hann sigraði og komst hann þar með í undanúrslit. Þar mætti hann Douglas Vieira frá Brasilíu sem hann tapaði fyrir og átti þá eingönu eftir glímuna um bronsið. Þar mætti hann Ítalanum Yuri Fazi sem hann sigraði með glæsilegu kasti og armlás í kjölfarið.
(Heimild: Íslendingar á Ólympíuleikum eftir Gísla Halldórsson).