Næstu leikar
 
Trabzon 2011 - Úrslit

Mánudagur 25. júlí                         


Tennis

Einliðaleikur:                                    
       
Eirfinna Manadis Chen Ragnarsdóttir tapaði 6-0 og 6-0 fyrir Kristynu Rouckovu frá Tékklandi.
Hera Björk Brynjarsdóttir tapaði í tveimur settum 6-0 og 6-0 fyrir Ugne Parazinskaite frá Litháen.
Sverrir Bartolozzi tapaði 6-0 og 6-0 fyrir Phillip Gresk frá Póllandi.
Vladimir Ristic tapaði í tveimur settum 6-1 og 6-3 fyrir Frederik Oervad frá Danmörku.


Sund

400m skriðsund stúlkna:  Rebekka Jaferian synti á 4:38,35 og endaði í 17. sæti. í undanriðlum.

200m baksund drengja:  Kristinn Þórarinsson synti á 2:14,11 og varð í 24. sæti af 29. keppendum.

200m bringusund stúlkna:  Í riðlakeppninni synti Ólöf Edda Eðvarðsdóttir á tímanum 2:45,25 og tryggði sig þar með í B-
úrslit. Í því sundi synti hún á tímanum 2:43,61.


Frjálsíþróttir

Þrístökk stúlkna:  Dóróthea Jóhannesdóttir 11,38 sem var 19. besti árangur í forkeppninni.

100m hlaup drengja: Kolbeinn Höður Ólafsson hljóp á 11,08 sem er bæting og 20. besti tíminn í forkeppninni.

400m hlaup stúlkna:  Arna Stefanía Guðmundsdóttir hljóp á 55,48 sem var 8. besti tíminn í undanriðlunum. Það dugði þó
ekki í úrslit þar sem lakari tímar voru hjá þeim sem enduðu í fyrsta eða öðru sæti í hinum riðlunum.


Þriðjudagur 26. júlí                      

Tennis

Tvíliðaleikur:
 
Eirfinna Manadis Chen Ragnarsdóttir og Hera Björk Brynjarsdóttir töpuðu fyrir stöllum sínum frá Belgíu í tveimur settum 6-2 og 6-1.
Sverrir Bartolozzi og Vladimir Ristic töpuðu fyrir drengjum frá Slóvakíu 6-3 og 6-2.


Sund

200m fjórsund stúlkna:  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir 2:27,87 sem tryggði henni sæti í B-úrslitum. Þar synti hún á 2:28,49.

4x200m skriðsund blandað: Þar syntu íslensku keppendurnir á tímanum 8:36,19 sem dugði í 18. sæti.


Hjólreiðar

Time trial:  Emil Tumi Víglundsson hjólaði á tímanum 14:19,65 og endaði í 78. sæti af 95 keppendum sem voru skráðir til leiks.


Fimleikar

Í liðakeppni drengja var íslenska liðið skipað þeim Garðari Agli Guðmundssyni, Hróbjartri Pálmari Hilmarssyni og Sigurði Andrési Sigurðarsyni í 29. sæti af 31 þjóðum.  Var heildareinkunn þeirra 136.70.  Enginn þeirra komst áfram í úrslit.



Miðvikudagur 27. júlí                            
 
Hjólreiðar

Criterium 25,5 km - undankeppni:  Emil Tumi Víglundsson keppti í riðli tvö og endaði í 30. sæti eftir að hafa verið hringaður af fyrstu keppendum.

Criterium 34 km - úrslit:  Emil Tumi Víglundsson keppti einnig í B-úrslitum og endaði þar í 25. sæti eftir að hafa verið hringaður af fyrstu keppendum.


Frjálsíþróttir
 
Hástökk drengja:  Sindri Hrafn Guðmundsson stökk 1,85m sem dugði ekki til að komast í úrslit.

200m hlaup stúlkna:  Dóróthea Jóhannesdóttir hljóp á 25,75 sem var 18. besti tíminn í undanriðlunum.

200m hlaup drengja:  Kolbeinn Höður Ólafsson 22,09 sem er bæting.  Tíminn var sá 13. besti í undanriðlunum.


Júdó

-57kg stúlkna:  Í forkeppninni tapaði Ingunn Rut Sigurðardóttir fyrir stúlku frá Ítalíu. Í uppreisnarglímu tapaði Ingunn svo fyrir stúlku frá Georgíu.


Fimleikar
Í liðakeppni kvenna var liðið í 21. sæti af 23 þjóðum með einkunina hlutu 87.650.  Liðið skipuðu þær þær Freyja Jósepsdóttir, Þórey Kristinsdóttir og Hildur Ólafsdóttir. 


Fimmtudagur 28. júlí

Sund

400m fjórsund stúlkna:  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir náði 9. besta tímanum 5:09,98 og tryggði sig inn í B-úrslit. Þau sigraði hún á tímanum 5.05,24 sem reyndist vera sjöundi besti tími dagsins.

200m flugsund drengja:  Daníel Hannes Pálsson 2:13,59 sem var 22. besti tíminn.

200m skriðsund stúlkna:  Rebekka Jaferian synti á 2:15,64 sem var 20. besti tíminn.


Frjálsíþróttir

Spjótkast drengja:  Sindri Hrafn Guðmundsson kastaði 65,25 metra, bætti þar með eigin aldursflokkamet í greininni og tryggði sig inn í úrslitin. Átti Sindri áttunda lengsta kastið í undankeppninni.     

Langstökk stúlkna:  Arna Stefanía Guðmundsdóttir gerði öll stökk sín ógild í undankeppninni í langstökkinu.


Hjólreiðar

Road Race 70,8 km:  Emil Tumi Víglundsson keppti í götukeppni og lauk keppni í 56. sæti af 96. keppendum, á tímanum
1:48.19, eða 1.09 á eftir fyrsta manni.


Júdó

-73kg drengja:  Logi Haraldsson tapaði sinni viðureign við keppanda frá Andorra.

-81kg drengja:  Viðar Oddsson náði ekki að sigra andstæðing sinn frá Eistlandi. Hvorugur drengjanna fékk uppreisnarglímu.



Föstudagur 29. júlí

Sund
 
800m skriðsund stúlkna:  Rebekka Jaferian synti á 9:44,27 sem dugði henni ekki til að komast áfram í úrslit.

400m fjórsund drengja: Daníel Hannes Pálsson synti á 4:56,01 sem var 25. tíminn í undanrásunum.

200m flugsund stúlkna:  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir synti á 2:29,09 sem var 14. besti tíminn í undanrásunum og kom henni í B-úrslit. Í B-úrslitunum bætti hún um betur og synti á 2:24,80 sem tryggði henni sigur og níunda besta tímann í sundinu.

100m baksund drengja:  Kristinn Þórarinsson synti á 1:01,97 sem var 23. besti tíminn í undanrásunum.      



Frjálsíþróttir

Spjótkast drengja:  Sindri Hrafn Guðmundsson keppti í 12 manna úrslitum og kastaði þar best 66,06m og endaði í 8. sæti.

 

Ítarleg úrslit má finna á slóðinni:  http://www.trabzon2011.org/results/