Nýlega
lauk 11. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, en hún fór í ár fram í
borginni Trabzon í Tyrklandi. 22 íslenskir keppendur tóku
þátt í 6 íþróttagreinum og stóðu sig vel, þótt að ekki hafi unnist
til verðlauna að þessu sinni.Fánaberi á lokahátíð leikanna var Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, sundkona, en hún komst í B-úrslit í öllum þeim einstaklingsgreinum sem hún synti á leikunum.
Upplýsingar um leikana má finna hér á vef ÍSÍ og samantekt með úrslitum Íslands á leikunum 2011 má finna hér.
Næstu leikar fara fram árið 2013 í borginni Utrecht í Hollandi.
Framundan
er síðasti keppnisdagur Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Trabzon í
Tyrklandi. Á morgun keppa allir íslensku sundkrakkarnir og Sindri
Hrafn Guðmundsson keppir til úrslita í spjótkasti. Að keppni
lokinni verður lokaathöfn haldin. Hér til hliðar má sjá mynd frá
setningarathöfn leikanna, þar má sjá Helgu Magnúsdóttur
aðalfararstjóra og Örnu Stefaníu Guðmundsdóttur fánabera ásamt
tyrkneskri aðstoðarkonu. Setningarathöfnin var hin glæsilegasta, á
henni lýsti forsætisráðherra Tyrklands yfir að landið hyggist sækja
um að fá að halda leikana í Istanbúl árið 2020.
Ólympíuhátíð
Evrópuæskunnar í Trabzon í Tyrklandi er nú hálfnuð, en hátíðin var
sett síðastliðinn sunnudag á troðfullum leikvangi í miðbæ
Trabzon.Keppnin hófst strax á mánudagsmorgni með keppni í sundi, tennis og frjálsíþróttum. Í gær þriðjudag fór fram fyrsti hluti hjólreiðarkeppninnar og eins hófst þá keppni í fimleikum. Júdókeppni leikanna hófst einnig í gær en fyrsti íslenski keppandinn Ingunn Rut Sigurðardóttir, keppir í dag.
Árangurinn hefur verið ágætur hjá íslensku keppendunum. Ýmis met hafa verið slegin í frjálsíþróttum og sundi og hafa keppendur almennt staðið sig vel.
Keppnin á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar er hörð og sem dæmi um getu keppenda má nefna að sigurvegarar í öllum sundgreinum fyrsta daginn voru að synda á betri tíma en núgildandi Íslandsmet fullorðinna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta íslenska hópinn, þar sem Helga H. Magnúsdóttir aðalfararstjóri, kælir Emil Tuma Víglundsson, keppenda í hjólreiðum, eftir keppni hans í tímatöku í gær.
Í
kvöld, sunnudaginn 24. júlí, fer fram setningarhátíð 11.
Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Trabzon í Tyrklandi. Hefst
hún kl. 20:15 á tyrkneskum tíma, eða 17:15 á íslenskum tíma.Fánaberi Íslands verður Arna Stefanía Guðmundsdóttir, keppandi í frjálsíþróttum. Arna Stefanía er fædd árið 1995 og er Norðurlandameistari í 400m hlaupi 19 ára og yngri, hún náði lágmarki fyrir HM 17 ára og yngri á þessu ári og keppti þar í sjöþraut. Þá sigraði hún í 400m hlaupi á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein fyrr á þessu ári.
Hátíðin fer fram á á Hüseyin Avni Aker vellinum í Trabzon sem tekur 24.000 manns í sæti og verður sýnt beint frá henni í tyrkneska sjónvarpinu.
Keppnin hefst á mánudagsmorgni og verða það keppendur í sundi, tennis og frjálsíþróttum sem keppa fyrir Íslands hönd þann daginn, en aðrar greinar fara í gang degi síðar.
Íslensku
þátttakendurnir á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar hafa nýtt daginn í
dag vel til undirbúnings fyrir komandi keppni. Aðstæður á
keppnisstöðum eru til fyrirmyndar og allur aðbúnaður og aðstaða hér
í þorpi eins og best verður á kosið. Eftir kvöldmat í dag föstudag
hittist allur hópurinn og reyndi með sér í þrautum utandyra. Í
framhaldinu var svo fundur flokksstjóra og fararstjórnar.
Tekið er að fjölga í þorpinu en flestir keppendur koma á morgun laugardag. Helga H. Magnúsdóttir aðalfararstjóri kom nú í kvöld en von er á keppendum, þjálfurum og dómurum í fimleikum nú síðar í nótt. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ fylgir hópnum.
Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá þá (frá vinstri) Daníel
Hannes keppanda í sundi, Sverri keppanda í tennis og Víglund
flokksstjóra í hjólreiðum takast glaða á við eina af
þrautunum.
Dagana
23.- 30 júlí fer fram 11. Ólympíuhátíð Evrópuæskunar í borginni
Trabzon í Tyrklandi. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
sendir 22 keppendur til leiks í 6 íþróttagreinum, en alls telur
íslenski hópurinn 38 aðila, með dómurum, þjálfurum og
fararstjórn.Ólympíuhátíðin er með stærri íþróttaviðburðum sem haldnir eru í Evrópu og fara þeir fram á tveggja ára fresti. Alls er keppt í 9 íþróttagreinum, og tekur Ísland þátt í sex þeirra: fimleikum, frjálsíþróttum, hjólreiðum, júdó, sundi og tennis. Aðrar greinar eru blak, handknattleikur og körfuknattleikur, en sjö efstu lið í styrkleikalista Evrópu fá keppnisrétt í boltagreinum auk gestgjafa.
Íslenski hópurinn hélt utan miðvikudaginn 20. júlí, enda um langt ferðalag að ræða frá Íslandi til norðausturhluta Tyrklands, þar sem Trabzon stendur við Svartahafið. Fyrstu dagana æfir hópurinn ásamt keppendum Danmerkur og Finlands og er markmið þessara æfingabúða að efla samstarf Norðurlanda og undirbúa keppendur á sem bestan hátt m.t.t. veðurfars, tímamismunar og aðstæðna. Föstudaginn 22. júlí halda þátttakendur í fimleikum frá Íslandi og sameinast hópnum í Trabzon.
Aðalfararstjóri íslenska hópsins er Helga H. Magnúsdóttir sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ og mótanefnd evrópska handknattleikssambandsins. Helga er reynslumikil er kemur að ferðalögum íþróttahópa og mótahaldi í Tyrklandi og hefur verið fararstjóri á Ólympíuhátíð æskunnar tvisvar áður.
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, situr í nefnd um Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar á vegum Samtaka evrópskra Ólympíunefnda og mun hún fylgjast með leikunum og þátttöku Íslands. Hún stitur í þriggja manna eftirlitsnefnd með undirbúningi og framkvæmd næstu Ólympíuhátíðar í Utrecht í Hollandi árið 2013.
Vonast er eftir góðum árangri keppenda á leikunum í ár, en keppnin er hörð og eru bestu íþróttamenn Evrópu á aldrinum 15-18 ára í þessum íþróttagreinum meðal keppenda. Mikið hefur verið lagt í keppnisaðstöðu og ný mannvirki hýsa flestar greinar auk þess sem að Ólympíuþorpið er nýbyggt og var íslenski hópurinn einn sá fyrsti sem flutti inní þorpið aðfararnótt fimmtudags.
Setningarathöfnin fer fram sunnudaginn 24. júlí kl. 20:30 á Hüseyin Avni Aker vellinum í Trabzon sem tekur 24.000 manns í sæti. Lokahátíðin fer fram á sama stað, föstudaginn 29. júlí og hefst hún kl. 20:30 að staðartíma.
Hópurinn kom til Trabzon seint síðustu nótt eftir langt ferðalag frá Íslandi. Á meðfylgjandi myndum má sjá hópinn á flugvellinum við komu, í morgunverði fyrsta daginn og eitt húsa Ólympíuþorpsins sem er skreytt fánum þátttökuþjóða.
Dagana
24.-29. júlí næstkomandi fer Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fram í
borginni Trabzon í Tyrklandi. Allar Ólympíunefndir Evrópu
senda sína sterkustu keppendur á aldursbilinu 15-18 ára til
leiks.
ÍSÍ sendir að þessu sinni keppendur í fimleikum pilta og stúlkna, frjálsíþróttum, sundi, hjólreiðum, júdó og tennis og telur hópurinn 22 keppendur, 2 dómara í fimleikum og 13 fylgdarmenn í hlutverki þjálfara, flokksstjóra, sjúkraþjálfara og fararstjóra. Aðalfararstjóri í ferðinni er Helga H. Magnúsdóttir og aðstoðarfararstjórar eru Andri Stefánsson og Örvar Ólafsson. Stór hluti af keppendum hélt til Tyrklands í morgun og mun dvelja í æfingabúðum með Finnum og Dönum fram að leikum.
Gist verður í Ólympíuþorpi sem er heimavist háskólans í borginni, en hluti hennar er nýbyggður eins og flestir keppnisstaðir. Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu hennar, www.trabzon2011.org.