Næstu leikar
27.7.2012
00:00
- 12.8.2012
23:00
London 2012
Ólympíuleikar
29.8.2012
00:00
- 9.9.2012
23:00
London 2012
Ólympíumót fatlaðra
16.2.2013
20:00
- 23.2.2013
23:00
Brasov 2013
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
7.2.2014
00:00
- 7.2.2014
23:00
Sochi 2014
Vetrarólympíuleikar
28.2.2015
20:00
- 7.3.2015
23:00
Vorarlberg/Liechtenstein 2015
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar
 
Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ

Stjórn Afreks- og Ólympíusviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands er skipuð af framkvæmdastjórn ÍSÍ og fer með umboð framkvæmdastjórnar í þeim verkefnum sem henni er falið. Stjórnin er skipuð þremur aðilum. Tillögur og samþykktir sviðsins skulu bornar undir framkvæmdastjórn í fundargerðum eða beinum tillögum til endanlegrar samþykktar ÍSÍ.

Almenn markmið og verkefni sviðsins eru m.a.:

·       að hafa yfirumsjón með öllu sem lýtur að afrekssmálum ÍSÍ og/eða einstakra sérsambanda.

·       að sjá um undirbúning og mál er varða Ólympíuleika, Ólympíuleika ungmenna, Smáþjóðaleika, Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og önnur þau alþjóðamót sem ÍSÍ tekur þátt í.

·       að fylgjast með framgangi í afreksíþróttum og afreksstefnu einstakra sérsambanda og meta skilgreiningar á afrekum og markmiðum sérsambanda.

·       gera tillögur um fjárveitingar í fjárhagsáætlunum ÍSÍ til afreksmála.

·       að starfa náið með Afrekssjóði ÍSÍ.

·       að fara yfir tillögur er lúta að stefnumörkun og áherslubreytingum í íþróttamálum sem snerta afreksmál í víðasta skilningi og leggja mat á þær.

·       sjá um ásamt forseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ, samskipti er varða afreksmál við Alþjóðaólympíunefndina (IOC), Ólympíusamhjálpina (OS), Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC), Heimssamband Ólympíunefnda (ANOC) og önnur alþjóðasambönd sem sinna afreksmálum.

·       að fjalla um þau erindi er snerta afreksmál og berast skrifstofu ÍSÍ og framkvæmdastjórn ÍSÍ og/eða framkvæmdaráð ÍSÍ vísar til þess.

·       að fylgjast með framvindu mannvirkjamála er lúta að þjóðarleikvöngum.