Í
tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ gaf Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands út bók sem ber heitið „Íþróttabókin - ÍSÍ saga og samfélag
í 100 ár”. Með útgáfu hennar er leitast við að geyma í senn
sögu sambandsins og merka atburði í íslensku íþróttalífi.
Ákveðið var að fara nýja leið við upprifjun sögunnar og leggja
aðaláhersluna á að fjalla um þau víðtæku áhrif sem íþróttastarfið
og íþróttahreyfingin hefur haft á íslenskt samfélag í gegnum
tíðina. Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur ritstýrði verkinu. Fáir Íslendingar hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar. Til liðs við Steinar voru fengnir nokkrir höfundar sem allir eru kunnir íþróttaáhugamenn, Ellert B. Schram, Ágúst Ásgeirsson, Jón M. Ívarsson, Steinþór Guðbjartsson, Björn Vigni Sigurpálsson og Þorgrím Þráinsson. Í ritnefnd bókarinnar voru Stefán S. Konráðsson formaður, Magnús Oddsson, Jón Gestur Viggósson og Unnur Stefánsdóttir. Jón M. Ívarsson annaðist myndaval og útvegun mynda í bókina. Skönnun mynda var í höndum Brynjars Gunnarssonar ljósmyndara. Prentsmiðjan Oddi sá um umbrot og prentun en Árni Jörgensen var útlitshönnuður bókarinnar.
Bókin er til sölu í Bókabúð Máls og Menningar, Laugavegi 18. Í dag, fimmtudaginn 8. mars er hún á íþróttaverði eða 5.900 en venjulegt verð er 7.900 krónur. Við ritun bókarinnar kom í ljós að ekki kæmist allt efnið fyrir í bókinni. Seinna verður það efni aðgengilegt hér á heimasiðu ÍSÍ.
Á afmælishátíð ÍSÍ í Ráðhúsi
Reykjavíkur 28. janúar sl. sæmdi Ólafur E. Rafnsson forseti ÍSÍ þau
Ara Bergmann Einarsson, Guðmund Kr. Jónsson, Hrafnhildi
Guðmundsdóttur og Kolbein Pálsson Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir
langvarandi og góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Allir
þessir einstaklingar hafa komið víða við í hreyfingunni, í félögum,
íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ og öll voru þau í stjórn ÍSÍ eða
Ólympíunefndar Íslands um eitthvert skeið.
Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur E. Rafnsson forseti
ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, Kolbeinn
Pálsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Ari
Bergmann Einarsson og Lárus Blöndal varaforseti ÍSÍ.
Evrópusamband ólympíunefnda
- EOC hélt framkvæmdastjórnarfund sinn á Íslandi í tengslum við 100
ára afmæli ÍSÍ. Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum ÍSÍ í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Stjórn og starfsfólk EOC tók einnig
þátt í hátíðardagskrá ÍSÍ á afmælisdaginn. Patrick Hickey
forseti EOC ávarpaði hátíðargesti í Ráðhúsi Reykjavíkur og færði
forseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ og mennta- og menningarmálaráðherra
áritaða platta frá EOC. Forseti EOC lýsti yfir ánægju sinni með
dvölina hér á landi og samstarfið við ÍSÍ. Það var ÍSÍ mikill
heiður að hafa forystu EOC viðstadda þessi merku tímamót.
Á myndinni er Patrick Hickey forseti EOC að flytja ávarp í
hátíðardagskrá ÍSÍ.
Vilhjálmur
Einarsson, silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólympíuleikunum í
Melbourne1956, var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á afmælishátíð ÍSÍ,
28. janúar sl. Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma að
útnefna Vilhjálm í Heiðurshöllina á hátíðarfundi framkvæmdastjórnar
ÍSÍ fyrr þennan dag.
Vilhjálmur, sem er Heiðursfélagi ÍSÍ, var einn af fremstu þrístökkvurum heims á árunum 1956-1962 og einnig á Evrópumælikvarða í langstökki sömu ár. Vilhjálmur setti glæsilegt Ólympíumet þegar hann vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956 með stökki sínu 16.26 m. Það met bætti síðan heimsmethafinn Da Silva frá Brasilíu með sigurstökki sínu á sömu leikum. Vilhjálmur stóð sig einnig frábærlega á Ólympíuleikunum í Róm 1960 er hann náði 5. sæti í þrístökki með stökki upp á 16.37 m. Hann vann einnig til 3. verðlauna á EM í Stokkhólmi 1958 og varð í 6. sæti í Belgrad 1962, svo eitthvað sé nefnt. Vilhjálmur hefur ætíð sýnt íþróttum og íþróttahreyfingunni á Íslandi mikinn áhuga og velvilja, verið mörgum íþróttamanninum fyrirmynd og blásið þjóðinni bjartsýni í brjóst með því að sýna og sanna að við getum vel unnið til verðlauna á stórmótum úti í heimi, þó að fámenn séum.
Heiðurshöll er óáþreifanleg „höll” afreksíþróttafólks og
afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri
grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í
Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ
ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu nýja
verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall okkar
framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra
helstu afrekum.
Í
tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands var
afhjúpaður skjöldur í fundarsalnum Bárubúð í Ráðhúsi
Reykjavíkur, sem vísar til stofnunar sambandins í Bárubúð árið
1912. Það voru Heiðursforsetar ÍSÍ, Gísli Halldórsson og
Ellert B. Schram sem afhjúpuðu skjöldinn við hátíðlega athöfn í
tengslum við hátíðarfund framkvæmdastjórnar ÍSÍ í Ráðhúsi
Reykjavíkur á sjálfan afmælisdag ÍSÍ. Við þetta tækifæri hélt Eva
Einarsdóttir borgarfulltrúi og formaður ÍTR stutt ávarp, fyrir hönd
borgarinnar, en skjöldur þessi er gjöf Reykjavíkurborgar til
Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í tilefni afmælisins.
Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ, fagnar 100 ára afmæli sínu 28.
janúar 2012 en sambandið var stofnað þann dag í Bárubúð árið
1912. Alls mættu 25 fulltrúar frá sjö félögum á stofnfund
sambandsins en það voru fulltrúar frá Reykjavíkurfélögunum
Glímufélaginu Ármanni, Íþróttafélaginu Kára, Íþróttafélagi
Reykjavíkur, Knattspyrnufélaginu Fram, Knattspyrnufélagi
Reykjavíkur, Umf. Reykjavíkur og Umf. Iðunni. Að auki var á
fundinum lögð fram ósk frá fimm félögum í viðbót að gerast
stofnfélagar sambandins. Það voru félögin Skautafélag
Reykjavíkur, Sundfélagið Grettir og Akureyrarfélögin Íþróttafélagið
Grettir, Glímufélagið Héðinn og Umf. Akureyrar. Axel Tulinius
var kosinn fyrsti forseti ÍSÍ.
Á afmælisdaginn sjálfan ætlar ÍSÍ að halda hátíðarfund framkvæmdastjórnar í fundarsalnum Bárubúð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að honum loknum mun ÍSÍ bjóða boðsgestum til móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á afmælisárinu verða fjölmargir viðburðir á dagskrá, bæði viðburðir sem ÍSÍ stendur fyrir en einnig viðburðir sem verða skipulagðir af sambandsaðilum ÍSÍ um land allt eða í samstarfi við sambandsaðila og aðildarfélög þeirra.
ÍSÍ er síungt samband og framtíðin er björt hjá íslenskri
íþróttahreyfingu. ÍSÍ óskar íþróttahreyfingunni og
landsmönnum öllum til hamingju með 100 ára afmælið.
Íslandspóstur
hefur gefið út frímerki í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ. Hér má sjá
mynd af frímerkinu sem er hannað af Tryggva Tryggvasyni.
Verðgildi frímerkisins er bréf 50 g innanlands, ígildi 97 kr.