7.2.2012
Samkvæmt lögum ÍSÍ þurfa allar einingar innan vébanda ÍSÍ að skila svokölluðum starfsskýrslum til ÍSÍ í gegnum Felix, skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ. Skilafrestur er 15. apríl, ár hvert.
Búið er að opna fyrir starfsskýrsluskil og eru sambandsaðilar og íþrótta- og ungmennafélög hvött til að skila inn starfsskýrslum sem fyrst.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar varðandi starfsskýrsluskil
gefa Rúna H. Hilmarsdóttir (runa@isi.is) og/eða Halla
Kjartansdóttir (halla@isi.is) á skrifstofu ÍSÍ.
Greinar
Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands stendur nú á merkum tímamótum.
Fagnar aldarafmæli. Að baki er merkileg saga frá því að
samtökin voru stofnuð á umbrotatímum í íslensku samfélagi á
öndverðri 20. öldinni – nokkrum árum áður en Ísland varð fullvalda
ríki. Í eitthundrað ár hefur íþróttahreyfingin verið samferða
þjóðinni og þjóðin samferða íþróttahreyfingunni. Segja má að
starfsemi íþróttahreyfingarinnar hafi verið margháttaður spegill á
félagslega þróun samfélagsins. Í tímans rás hefur þessi þróun
endurspeglað byltingu í lífsháttum, skapað lífstíl og viðfangsefni
sem í dag teljast til órjúfanlegs hluta okkar menningar og
samfélags. Íþróttahreyfingin hefur í raun lagt umtalsverðan
skerf til sjálfstæðisbaráttu og sjálfstæðisvitundar
þjóðarinnar.
ÍSÍ 100 ára
27.1.2012